Stjórnarskrá Írans virt að vettugi

Sakborningarnir sjöFyrsta dómþing í réttarhöldum yfir fyrrverandi meðlimum Yárán [framb: Jaran], ad-hoc stjórnunarnefndar sem hafði umsjón með grunnþörfum Bahá'í samfélagsins í Íran, var haldið gær. Samkvæmt óstaðfestum heimildum fór megintími þess í að lesa upp sakargiftir sakborninganna sjö.

Iran Press Watch birti í gær grein þar sem farið er nánar út í sakargiftir sakborninganna en þær eru eftirfarandi:

  • Njósnir fyrir erkióvininn Ísraelsríki
  • Trúarspjöll
  • Áróður gegn islamska lýðveldinu
  • Aðstoð við, kennsla og útbreiðsla bahá'í trúarinnar í Íran eða það sem þeir kalla "að útbreiða spillingu á jörðinni, mofsed fel-arz, en dauðadómur er við þeirri sakargift verði sjömenningarnir fundnir sekir.

Höfundar útskýra afar vel sakargiftirnar, sýna fram á hvernig þær fá alls ekki staðist og benda á hvernig skýr ákvæði Írönsku stjórnarskrárinnar hafa verið þverbrotnar þegar kemur að meðhöndlun sakborninganna sjö.

Greinina má lesa hér:

Iran, not Yaran, on trial in the court of international opinion

 

 

Ég læt fljóta með tengla á umfjöllun ýmissa fjölmiðla um málið:

Útvarpsfréttir RÚV mánudaginn 11. janúar kl. 16:00

Útvarpsfréttir RÚV þriðjudaginn 12. janúar kl. 15:00

Fréttatilkynning Bahá'í samfélagsins á Íslandi

Frétt á fréttavef Alþjóðlega bahá'í samfélagsins

Frétt á vef BBC

Frétt á vef New York Times

Frétt á vef CNN


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband