Miðvikudagur, 30. apríl 2008
Nú bíður maður spenntur
Um þessar mundir stendur yfir Heimsþing bahá'ía í Haifa. Meðlimir Andlegra þjóðarráða bahá'ía eru þar saman komnir til að kjósa æðstu stjórnstofnun bahá'í heimsins, Allsherjarhús réttvísinnar.
Fimm félagar mínir sem sitja í íslenska þjóðarráðinu eru þar nú og er maður með þeim í huga og hjarta. Ég kemst því miður ekki að þessu sinni, enda nýbúinn að vera þar í pílagrímsferð.
Á fréttavef Alþjóðega bahá'í samfélagsins má sjá skilmerkilegar fréttir og lýsingar á samkomunni og góðar myndir frá kosningu Allsherjarhússins og helgistund í tilefni af níunda degi ridvánhátíðarinnar sem haldin var hátíðleg í gær.
Svo bíður maður spenntur að vita hverjir voru kosnir meðlimir Allsherjarhússins að þessu sinni, en það verða a.m.k. tvær breytingar þar sem tveir af þeim hafa beðist lausnar sökum aldurs.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.