Sunnudagur, 16. september 2007
Svefn og framtakssemi
Við hjónin höfum nú verið foreldrar í um eitt og hálft ár. Það er samt nokkuð merkilegt að það eru sumir hlutir sem við eigum erfiðara með að sætta okkur við en aðra. Eitt af því er að átta okkur á því að við erum ekki lengur ungmenni sem geta leyft sér að fara seint að sofa eða sofa út.
Áður fyrr gátum við leyft okkur að horfa á bíómyndir um helgar langt fram yfir miðnætti og síðan leyft okkur sofa vel upp undir hádegi daginn eftir. Því er nú ver að sú er ekki lengur tíðin. Núna vaknar Darian sonur okkur undantekningalaust eldsnemma á hverjum morgni, hvort sem er á virkum dögum eða um helgar.
Við höfum því rætt það að við verðum að hætta að lifa í þeirri draumsýn að við getum leyft okkur að vaka fram undir miðnætti um helgar og haldið að við verðum starfhæf daginn eftir.
Í gær laugardag ákváðum við að prófa einu sinni að fara snemma að sofa. Ekkert sjónvarpsgláp fram undir miðnætti eða neitt slíkt. Við vöknuðum á venjulegum tíma og byrjuðum daginn, gefa Darian að borða, þrifum húsið, elduðum vikuskammt af mat fyrir Darian, fengum foreldra mína í heimsókn elduðum vikuskammt af persneskum mat fyrir okkur og kvöldmat fyrir okkur.
Við vorum nokkuð stolt af framtaksseminni og munum ekki eftir að hafa verið jafn framtakssöm á einum sunnudegi. Og hvað fáum við í staðinn? Jú við höfum verið starfhæf í dag og ekki verið eins og gangandi uppvakningar og við eigum nóg af persneskum mat og afgöngum af öðrum mat sem við þurfum bara að hita upp út næstu viku. Það sparar tíma!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 14. september 2007
Tónlist - Seals & Crofts og Einar Ágúst
Einar Ágúst hefur sett nýtt lag eftir sig á myspace síðuna sína www.myspace.com/einaragust og frumflutti það á Bylgunni í dag (missti af því því miður). Mjög gott að mínu mati. Svo var viðtal við hann sem nálgast má hér.
Svo tókst mér að vafra þaðan inn á myspacesíðu fyrir Seals and Crofts. Kíkið endilega á hana og hlustið. Fyrir þá sem ekki vita voru Seals and Crofts band skipað tveimur bahá'íum sem voru nokkuð frægir á 8. áratug síðustu aldar. Þeir komu m.a. hingað til lands héldu tónleika við mikla hrifningu og margir af hippakynslóðinni muna enn eftir þeim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Afmælisboð fyrir Earl Cameron
Barney Leith segir frá afmælisboði sem haldið var í bahá'í þjóðarmiðstöðinni í Lundúnum á dögunum til heiðurs leikaranum Earl Cameron. Árið 2005 birtist grein á bahai.is um leik hans í myndinni The Interpreter.
Fyrir utan glæstan feril í leiklistinni hefur hann einnig þjónað bahá'í trúnni dyggilega og brautruddi til Salómonseyja í Kyrrahafi eins og kom fram í frétt Alþjóðlegu bahá'í fréttaþjónustunnar.
Ég hefði gjarnan viljað vera fluga á vegg í þessu boði og viljað sjá umrætt myndband sem sýnt var í veislunni. Fyrir mig sem bahá'ía er uppörvandi að heyra um fólk eins og Cameron sem nær að tjá kenningar trúarinnar í starfi sínu eins og kemur fram í færslu Barneys. Kíkið á hana hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 3. september 2007
Skilríkjamálið - brilljant ádeila
Ég var að sjá færslu hjá Barney Leith með þessu myndskeiði hér fyrir neðan. Þetta er eftirlíking af frægri auglýsingu sem beint er að ferðamönnum til Egyptalands og er unnin af Muslim Network for Bahai Rights.
Myndskeiðið er nokkuð áhrifaríkt. Nánari uppýsingar um skilríkjamálið má finna hér til vinstri og einnig má lesa eldri frétt um málið hér.
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Sumarskólinn
Jæja, ég byrjaði fyrir löngu á þessari færslu en komst aldrei í að klára hana. En betra er seint en aldrei ekki satt?
Í byrjun ágúst fórum við Erin og Darian á Sumarskóla bahá'ía. Hann var hreint út sagt frábær. Aðalfyrirlesarnir, sem að þessu sinni voru hjónin Giuseppe Robiati og eiginkona hans Mehry Sefidvash-Robiati, kunnu svo sannarlega að koma frá sér efninu og krydduðu það inn á milli með líflegum sögum sem fengu fólk ýmist til að hlæja eða gráta. Aðsóknin var mjög góð að þessu sinni og voru gestir flestir um 115 talsins á laugardeginum.
Giuseppe, eða Beppe, eins og hann er kallaður, fjallaði um Heimsskipulag Bahá'u'lláh, og setti það í samhengi við grunnstarfsemina sem bahá'íar um allan heim vinna við að byggja upp, þ.e. námhringi, helgistundir, barnafræðslu og unglingakennslu.
Konan hans, Mehry, var með fyrirlestra um hjónaband og fjölskyldulíf. Hún starfar sem sálfræðingur og hjónabandsráðgjafi og hefur gefið út bókina Coral and Perls sem fjallar um þetta mál út frá bahá'í sjónarhorni. Það vill svo skemmtilega til að við keyptum bókina stuttu eftir að við giftum okkur (hmm.. eða var það áður ... allavega) og Erin er sérstaklega hrifin af henni.
Það kom okkur því skemmtilega á óvart þegar hún var kynnt á sumarskólanum og fram kom að hún hafði skrifað bókina. Erin greip því tækifærið eftir sumarskólann og fékk hana til að árita bókina okkar.
Ég ætla mér að segja fleiri sögur frá sumarskólanum en ég læt þetta duga í bili. Ég er að vinna í því að setja inn fleiri myndir og mun líklega reyna að skrifa út frá þeim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 30. júlí 2007
Góðir gestir
Um þar síðustu helgi fengum við góða gesti. Ég var byrjaður á þessari færslu fyrir löngu ef svo tafðist ég af ýmsum ástæðum, þar á meðal datt helmingur hennar út fyrir slysni eitt sinnið. Ég hef sett myndir inn á myndaalbúmið og hér fyrir neðan er smá frásögn.
Berglind og Heiða
Á föstudaginn komu Berglind Halldórsdóttir ásamt móður sinni, Sjöfn Heiðu Steinsson (kölluð Heiða). Berglind er búsett í Bandaríkjunum ásamt manni sínum Adib Birkland. Berglind er bahá'íi eins og við og stundar nú laganám við háskóla í New York. Heiða er einnig búsett erlendis, nánar tiltekið í Bonn, Þýskalandi, ásamt eiginmanni sínum Halldóri Þorgeirssyni sem starfar við skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna.
Hér er ein mynd úr þeirri heimsókn. Fleiri myndir er hægt að skoða í albúminu:
Davíð, Ragnhild og Snorri
Davíð Gunnarsson, æskuvinur minn kom einnig ásamt eiginkonu sinni og syni. Því miður láðist mér að taka myndir af þeim einhverra hluta vegna. Við höfðum um svo mikið að tala að myndatökur gleymdust. Hann tjáði mér að hann ætlaði í nám í efnafræði í haust, sem eru merkileg tíðindi því þegar við vorum táningar var það mikið áhugamál okkar. Hann pantaði t.d. bókina Pyrotechnics og Chemistry of Powder and Explosives sem allt fjallar um flugelda og púðurgerð o.þ.h. sem við vinagengið á Króknum urðum síðan viðriðnir.
Síðan er maður auðvitað hættur þessu og farinn út í allt annað. En Davíð ætlar í efnafræðina, líklega að læra um málefni er lúta að olíuvinnslu og hreinsun. Hann býr eftir allt saman í Noregi!
Í framhaldi af æskunostalgíunni var mér ánægjuefni að uppgötva þessa slóð nýverið: www.eldflaug.com
Jo Ella
Á laugardeginum var okkur hjónunum boðið í mat til mömmu og pabba. Þar var í einnig í heimsókn Jo Ella Turner, sem er góður fjölskylduvinur sem bjó hér á landi fyrir um aldarfjórðungi síðan. Jamm, ég var allavega fimm ára. Þá bjó ég ásamt foreldrum mínum í Ólafsvík og hún var þá ógift og var tónlistarkennari á staðnum. Síðan flutti hún aftur til Bandaríkjanna, giftist og á nú dótturina Elizabeth sem sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Hún starfar nú sem sálfræðingur á stofnun fyrir geðsjúka þar í landi. Hún sagði okkur áhugaverðar sögur um þá kvilla sem hún þarf að aðstoða fólk með. Mannskepnan er margbrotin, það má segja!
Dóttir hennar dvaldi hér í um tvo mánuði ef ég man rétt hjá fyrrum nemanda Jo Ellu, Úlfhildi Leifsdóttur, sem mér skilst að sé jafnaldra mín. Þær mæðgur fóru síðan af landi brott stuttu eftir að við hittumst.
Hér má sjá mömmum og pabba, Elizabeth og Jo Ellu.
Elizabeth er auðvitað Harry Potter aðdáandi og vakti til kl. 4 nóttina áður við lestur eftir að hafa gripið bókina glóðheita úr bókaverslun þegar hún kom út kvöldið áður kl. nákvæmlega 23.01 eða eitthvað svoleiðis.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. júlí 2007
Tahirih Justice Center
http://www.doubletake.tv/cms/inspirationbeyondborders-english
Já, og látið ykkur ekki bregða en kynnirinn heitir Leyla og myndskeiðið byrjar með henni. Lögfræðingurinn heitir Laylí.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. júlí 2007
Hauður hjá Monte Carmelo
Hauður vinkona mín og samverkamaður innan bahá'í samfélagsins setti tengil á myndskeið með sér á bloggið sitt. Hún er nú á ferðalagi í Suður-Ameríku og þjónaði í tvo mánuði sem sjálfboðaliði við félags- og efnahagslegt þróunarverkefni á vegum Bahá'í samfélagsins í Brasilíu sem nefnist Monte Carmelo.
Ég birti hér tengil á enska útgáfu myndskeiðsins en til er íslensk útgáfa, en Hauður greyið dauðskammaðist sín fyrir þá útgáfu. Einnig fékk ég með hennar leyfi að birta grein sem hún skrifaði um verkefnið. Þetta virðist vera mjög áhugavert verkefni.
http://www.youtube.com/watch?v=3A0FR_P35NA
Hér er svo greinin (stafsetningu er breytt en hún virðist ekki hafa íslenskt lyklaborð þarna úti):
Monte Carmelo samtökin voru stofnuð seinni part níunda áratugarins, af hópi fólks með sameiginleg sjónarmið og skoðanir varðandi velferð barna í smábæjum rétt hjá São Paulo, í Brasilíu. Það er að segja, fólk með áhyggjur af félagslegu umhverfi barna hér og hvernig umhverfið leiðir oft börn út í eiturlyfjaneyslu og glæpi seinna meir. Því voru Monte Carmelo samtökin stofnuð með það fyrir stafni að betrumbæta andlega og félagslega menntun barna. Það er að segja gefa bornum þekkingu til að taka réttar ákvarðanir í framtíðinni og gera
betri fullorðna einstaklinga sem gefi af sér.Krakkarnir sem eru í Monte Carmelo samtökunum, eru öll af fátækum uppruna og oft frá frekar erfiðum fjölskyldu aðstæðum. Foreldrar þeirra eru flestir ólæsir og vinna vinnu sem er nær þrælkun yfirleitt í iðnaði, eða eru bara atvinnulausir. Sum börn hafa verið flutt frá fjölskyldum sínum því aðstæður á fyrrum heimilum þeirra voru þeim hættulegar. Fjölskyldur hér eru oft mjög stórar, því eru börn oft vannærð, og fá litla umhyggja frá foreldrum sem er fjarverandi við
vinnu mest allan daginn, og hafa ekki við því að sinna 5-10 börnum þegar þau koma heim úr vinnunni.
Þó grunnskóli sé gjaldfrjáls hérna, og börn fá tækifæri til að læra undirstöðuatriði í bóklegum fögum eins og er gert á Íslandi, er gífurlegur skortur á kennurum, og eru oft bekkir gríðarlegar stórir, og meiri hluta barna nær ekki lokaprófum og eiga því ekki möguleika áframhaldskólanámi. Það er ekki óalgengt að börn 8-10 ára séu enn ólæs, jafnvel þó þau hafa gengið í skóla. Heimilisaðstæður t.a.m. vannæring og skortur á menntun foreldra gera skólaferil barna einnig oft erfiðan.
Monte Carmelo stendur fyrir skóla sem leggur áherslu á félagslega og andlega menntun, sem viðbót við bóklegt nám. Skólakrakkar hérna eru bara hálfan daginn í skólanum, og eru því athafnarlaus seinna, eða fyrri part, dagsins. Þetta athafnarleysi leiðir til þess að börnin
eyða miklum tíma dagsins á götunni, og læra hegðun sem er þeim ekki til góðs.
Í Monte Carmelo skólanum eru nú á skrá 150 börn, á aldrinum 6-14 ára. Í skólanum erum þeim kenndar dyggðir, og hverskonar hegðun hver og ein dyggð felur í sér. Skólinn býður einnig upp á tón-og myndamenntatíma, og vettvangsferðir. Í skólanum er morgun-og hádegismatur, sturtur og , meira að segja, tannburstar, og allt sem þarf til að uppfylla undirstöðuatriði hreinlætis og næringar. Þetta allt er fjölskyldum þeirra auðvitað að kostnaðarlausu!
Við skólann vinna 5 kennarar og 1 skólastjóri, einnig koma oft sjálfboðaliðir víðs vegar að til að hjálpa við ýmis verkefni. Stjórn Monte Carmelo samtakanna eru allt sjálfboðaliðir, og er skólinn og uppbygging hans studd af sjálfboðaliðum alls staðar að úr heiminum.
Monte Carmelo verkefnið hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum. Núna standa þau einnig fyrir námskeiði fyrir unglinga á aldrinum 14-18 ára sem hefur það að markmiði að undirbúa þau fyrir vinnumarkaðinn og hjálpa þeim að finna sér og halda vinnu. 20 unglingar eru þátttakendur
í þessu námskeiði. Einnig stendur Monte Carmelo samtökin fyrir tölvunámskeiði fyrir íbúa Porto Feliz, sem er bær rétt hjá Monte Carmelo skólanum. Tölvukennsla er í boði á hverjum degi, fyrir fólk á öllum aldri.
Stuðningur ýmsa fyrirtækja og einstaklinga, og ýmsar alþjóðlegar viðurkenningar hafa hjálpað verkefninu að vaxa. Hins vegar, eru enn jafn margir á biðlista til að komast inn í Monte Carmelo skólann og eru í honum.
Stjórn samtakanna hefur það að markmiði að stækka skólann gífurlega, betrumbæta vinnuaðstæður og bókasafn, breikka aldurshópinn sem fær aðgang að skólanum, og vonandi, einhvern tímann í framtíðinni byggja upp skóla sem býður upp á bæði andlega og bóklega menntun frá grunnskólastigi upp að háskólastig.
Sem sjálfboðaliði í þessu verkefni, hef ég ekkert nema gott um að segja varðandi stjórn, framkvæmd og þróun verkefnisins. Það ríkir mikil ánægð og sátt með verkefnið, þ.e.a.s. hjá nemendum, foreldrum, kennurum og íbúum Porto Feliz, næsta bæjar við skólann.
Persónulega hefur þetta verið mikil upplifun og reynsla. Að fá að kynnast og læra af þessum krökkum, sem hafa alist upp við svo ólíkar aðstæður og ég og allir sem ég hef kynnst hingað til, og fá að taka þátt í þessu verkefni er heiður og forréttindi fyrir hvern einstakling sem
elst upp við álíka velmegun og góðæri og ríkir á Íslandi. Vona ég að geta miðlað minni þekkingu, svo við, sem þekkjum ekki annað en að hafa allt það efnislega sem við þurfum og tækifæri á góðri menntun, getum nýtt okkar auð til að betrumbæta aðstæður þeirra sem þurfa á raunveralegri hjálp á að halda.
Um þessar nokkuð áhugaverðu ferðir Hauðar er svo hægt að fræðast nánar á blogginu hennar.
Bloggar | Breytt 9.7.2007 kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 16. júní 2007
Persnesk matargerð - Sveskju- og gulrótakhoresh
Fyrir nokkru keyptum við hjónin bókina New Food of Life: Ancient Persian and Modern Iranian Cooking and Ceremonies eftir Najmieh Batmanglij. Þetta er bók er mjög ítarleg og skemmtileg bók með persneskum réttum. Þótt ég sé alinn upp við persneska matargerð móður minnar hef ég ekkert sérstaklega verið að reyna að elda persneskan mat eftir að ég flutti frá foreldrunum (eða réttara sagt þegar þau fluttu burt til Noregs ).
Það er ekki fyrr en nýlega, eftir að við hófum byrjuðum að starfrækja
matarklúbb með vinum okkar Kötu og Jóa sem ég hef loksins hafist handa
við að elda persneskan mat. Persneskur matur er mjög mildur, alls ekki
sterkur eða kryddaður. Hinsvegar er alls kyns krydd notað og skipar þar
saffran veigamikinn sess.
Hrísgrjón eru alltaf borin fram með nær öllum réttum. Persar nota yfirleitt
aðeins basmatihrísgrjón sem þykja langbest til persneskrar matargerðar. Hrísgrjónin matreidd á sérstaka vegu þannig að þau eru laus
í sér og þannig að hrísgrjónaskurn (tadík) er mynduð á botni pottsins sem
þykir sérstakt hnossgæti. Stundum eru kartöfluskífur settar á botninn þannig
að úr verður steikt hrísgrjóna- og kartöfluskurn.
Fyrir um þremur vikum tók ég mig til og eldaði sveskju- og gulrótakhoresh að sjálfsögðu ásamt hrísgrjónum.
Mér fannst tilvalið að blogga um það og því tókum við nóg af myndum sem f
ylgja hér með til skýringar.
Sveskju- og gulrótakhoresh (Khoresh-e-havíj va olú).
Khoresh er sérstakur pottréttur, einkennandi fyrir persneska matargerð. Þar er grænmeti ásamt kjöti sett í pott ásamt vatni og úr verður þykkur pottréttur sem fer einstaklega vel saman með hrísgrjónum. Vatnið er þó aldrei látið verða svo mikið að úr verði súpa. Þessi tiltekna uppskrift er tiltölulega auðveld en tekur þó nokkurn tíma í matreiðslu. Þess vegna elda ég yfirleitt bara persneskan mat um helgar, enda verður persnesk matargerð seint talin einhver skyndibitamatargerð.
Hér fer svo uppskriftin:
2 meðalstórir laukar þunnt saxaðir
1 hvítlauksgeiri, afhýddur og kraminn
1200g af kjúklingi, t.d. úrbeinuð læri eða kjuðar
eða 600g af öðru skornu kjöti, t.d. lamba-, nauta- eða kálfakjöt.
5 msk matarolía
1 tsk salt
1/4 tsk nýmalaður pipar
1 tsk kanill (malaður)
1/4 tsk saffran uppleyst í 1 msk af heitu vatni
1/4 tsk malaðar kardimommur
600g gulrætur, hreinsaðar og sneiddar í skífur
2 bollar sveskjur (steinlausar) - má sleppa
2 msk sykur
Hér má sjá hráefnið sem við notuðum:
Í þetta sinn notuðum við annarsvegar úrbeinuð læri ásamt kjuðum. Þessi samsetning hentar ágætlega, er ekki of dýrt og er ekki of stórt eins og t.d. leggir en erfiðara er að elda þá þannig að vel sé. En jæja, uppskriftin:
6. Síðan er hrísgrjónin sett aftur í pottinn í keilulaga hrúgu. Þau eru látin steikjast við lágan hita í 1 1/2 til 2 klst. Þegar gufa er farin að myndast á loki pottsins er viskastykki vafið utan um hlemminn þannig að hann dragi í sig gufuna. Sjá mynd.
Hér fyrir neðan má svo sjá afraksturinn okkar umrætt kvöld:
Sveskju- og gulrótakhoresh tilbúið
Hrísgrjónin tilbúin
Tadíkið tilbúið
Við hjónin tilbúin að gæða okkur á kræsingunum.
Matur og drykkur | Breytt 25.11.2007 kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 10. júní 2007
Góðar videokennslusíður
Sturla vinnufélagi minn sendi tengla á góðar vídeókennslusíður til okkar vinnufélaganna. Þetta eru afbraðsvídeó mörg hver. Sérstaklega hef ég notið góðs af asp.net síðunum og svo var mjög hjálplegt að horfa á videóin um CSS stílsniðin.
Þegar ég var í margmiðlunarskólanum var farið mjög lauslega út í CSS og það var ekki fyrr en í tölvunarfræðinni við HR sem hugsjónin um aðskilnað efnis og framsetningar (content and presentation) hitti almennilega í mark hjá manni.
Mér hefur alltaf fundist svona sýnikennsla ómissandi og hef saknað þess að sjá ekki meira af svona kennsluframsetningu í tölvunarfræðinni. Það er fínt að vera með videó með kennara fara yfir glærur og tala. Það er ómetanlegt að sjá hinsvegar fagmann beita þeim tækjum sem þarf að nota.
Allavega, hér eru tenglarnir með kærum þökkum til Sturlu:
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 08:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)