Laugardagur, 24. nóvember 2007
Að ofsækja látið fólk
Í framhaldi af bloggfærslunni hér fyrir neðan er ein af aðferðum Íranskra stjórnvalda við ofsóknir á hendur bahá'íum að vanvirða grafir látinna bahá'ía með því að senda jarðýtur í garðana og umturna þeim. Ég rakst á þetta myndskeið á facebook og fann það síðan á youtube og leyfi mér að birta það hér. Það er unnið af bahá'ía í Toronto, Kanada.
Föstudagur, 23. nóvember 2007
Ungur íranskur píanisti
Ég var skoða bloggið hans Barney Leith og rakst á færslu um unga stúlku frá Íran sem stundar píanónám í Englandi um þessar mundir. Það að ung stúlka sé þar við píanónám er svosem ekki í frásögur færandi nema hvað að henni er meinað um að mennta sig og vinna við píanókennslu í heimalandinu vegna trúar sinnar. Hún er eins og þið getið líklega giskað á bahá'íi eins og ég.
Ruth Glendil segir frá henni á vef TimesOnline. Hún mun þurfa að snúa til heimalandsins áður en langt um líður en framtíð hennar, eins og annarra bahá'í landa hennar, er óviss. Íransstjórn hefur lengi viðhaldið þeirri stefnu að meina bahá'íum um að afla sér æðri menntunnar þar í landi sem er liður í kerfisbundinni áætlun sem var opinberuð árið 1993 af Sþ í skjali þar sem aðferðirnar sem beita skuli við ofsóknir á bahá'íum eru útlistaðar. Meðal þeirra aðferða er að kæfa bahá'í samfélagið þar í landi efnahagslega, þá meðal annars með því að hindra að bahá'íar komist til mennta eða áhrifa á nokkurn hátt.
Sjá nánar um þessi málefni bahá'íanna í Íran á tenglalistanum hér til vinstri. Hér fyrir neðan er svo myndskeið með tónlist sem hún spilar, m.a. vögguvísu frá heimalandinu. Þetta eru undurfalleg lög. Njótið.
Miðvikudagur, 7. nóvember 2007
Persneskur matur í Fréttablaðinu
Það getur verið afdrifaríkt að blogga! Ég setti eina færslu fyrir nokkrum mánuðum með uppskrift að persneskum mat á bloggið mitt og viti menn: Þrír vinir mínir hafa þegar prófað réttina, þar af einn sem bauð fjölskyldunni sinni í matarboð við mikinn fögnuð.
Nú er komið að enn einni frægðarsögunni. Fréttablaðið hafði samband og á morgun fimmtudag birtist viðtal við mig ásamt uppskriftinni og tengli á bloggið. Til að auðvelda fólki er hér tengill á umrædda færslu:
http://badi.blog.is/blog/badi/entry/240116/
Matur og drykkur | Breytt 8.11.2007 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 7. nóvember 2007
Nýr vefur um Bahá'u'lláh
Trúmál og siðferði | Breytt 8.11.2007 kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. nóvember 2007
Orlofsferðin
Þetta er búið að vera ágætis blogghlé. Það hefur verið mikið að gera undanfarið og svo veiktist ég með streptóhálsbólgu og tilheyrandi. Ég var hinsvegar að setja inn myndir loksins frá ferð okkar í orlofshús í Þjórsárdal í september.
Við áttum þar yndislega stund fjarri skarkala heimsins í gullfallegu umhverfi. Þegar maður fer í svona umhverfi skilur maður orð Bahá'u'lláh um að borgin sé staður líkamans en sveitin staður sálarinnar. Vildi bara óska að við hefðum getað verið lengur.
Darian litli minn undi sér vel eins og sjá má. Við áttum í smá vandræðum með hann þegar hann sá þetta:
Hann sá auðvitað vatn og vildi ólmur fara ofan í að leika sér eins og hann gerir í baði. Það var svolítið erfitt að koma honum í skilning um að þetta vatn væri mun kaldara og gæti hrifið hann út í Þjórsá ef hann færi ofan í. Hann fattar þetta þegar hann verður eldri .
Vinir og fjölskylda | Breytt 8.11.2007 kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 4. október 2007
Little Kofi
Barney Leith vísar á tónlistarsíðu tengdadóttur sinnar sem ber nafnið Little Kofi. Ég þjónaði reyndar með dóttur hans í Haifa á sínum síma (1996-1997) og hún skilst mér er að verða doktor í stjörnufræði (ekki datt manni það í hug útfrá ræstitæknisbúningnum allavega ). Það eru greinilega miklir hæfileikar í börnum hans og mökum þeirra!
Ég mæli með laginu Server, kannski það sé tölvunördinn í mér en lagið hefur nákvæmlega ekkert með tölvur að gera!
-------------
In english:
Barney Leith introduces his daugher-in-law's music page that is called Little Kofi. I served with his daughter in Haifa (1996-97) and I belive she is pursuing a doctorate in astronomy (you wouldn't have guessed that future for her from the cleaning-maintainence outfit ). There is obviously a lot of talent in his children and their spouses!
I recommend the song Server, maybe it is the computer nerd in me but of course the song has absolutely nothing to do with computers!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. október 2007
Hvað gerist í Egyptalandi í Október?
Bilo segir frá því í bloggi sínu að frá og með 1. október sl. hafi notkun pappírspersónuskilríkja í Egyptalandi verið lokið og héðan í frá verði íbúar landsins að nota sérstök rafræn persónuskilríki. Þetta hljómar svosem ekkert illa. Hvað er að því að koma sér inn í nútímann og taka upp rafræna stjórnsýsluhætti?
Persónuskilríkjum þessum framvísa Egyptar ef þeir vilja fá bankaþjónustu, fá atvinnu, afla sér menntunar, ferðast eða fá heilbrigðisþjónustu. Í raun er þetta skilríki bráðnauðsynlegt öllum vilji þeir eiga sér einhverja opinbera tilvist.
Einn hópur hefur ástæðu til að óttast við þessi umskipti. Það eru trúsystkini mín þar í landi, meðlimir Bahá'í samfélagsins í Egyptalandi. Þetta umrædda nafnskírteini tiltekur hvaða trú eigandinn aðhyllist, en aðeins er hægt að skrá ein þriggja viðurkenndra megintrúarbragða: gyðingdóm, kristni eða islam. Ekki er gefinn kostur á að skrá neitt annað í reitinn, ekki einu sinni er gefinn kostur á að hann sé tómur. Þar sem bahá'í trúin telst vera sjálfstæð trúarbrögð og tilheyrir engum þessara trúarbragða fæst hún ekki skráð og röng skráning er ekki aðeins óásættanleg útfrá sannsöglissjónarmiðum bahá'ía heldur einnig refsiverð gagnvart egypskum landslögum.
Þann 4. apríl í fyrra kærðu nokkrir bahá'íar þessa ákvörðun og unnu málið fyrir stjórnsýsludómstóli í héraði sem kvað upp þann dóm að stjórnvöldum væri ekki heimilt að meina bahá'íum um að fá nafnskírteini. Þessi niðurstaða vakti mikla athygli hvarvetna nálægum löndum og mannréttindahópar fögnuðu niðurstöðinni.
Harðlínuöfl landsins, þar á meðal Múslimska bræðralagið, hvöttu stjórnvöld til að áfrýja dómnum sem þau og gerðu. Æðsti stjórnsýsludómstóll landsins sneri svo úrskurðinum við í desember sama ár.
Í dag er það í höndum Mubarak Egyptalandsforseta að skerast í leikinn.
Vona ég innilega að hann finni ásættanlega lausn á þessu máli þannig að bahá'íar njóti fullra borgaralegra réttinda á við aðra íbúa landsins.
Nánar má lesa um málið hér. Einnig má horfa á myndskeið sem ég birti í eldri færslu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 26. september 2007
Merkur bahá'íi látinn
Þær leiðu fréttir bárust í gær á fréttavef Alþjóðalega bahá'í samfélagsins að Dr. 'Alí Muhammad Varqá væri látinn. Ég var svo heppinn að fá tækifæri til að hitta hann og hlýða á hann þegar ég þjónaði við heimsmiðstöð bahá'í trúarinnar í Haifa, Ísrael árið 1996-97. Hann var síðasta eftirlifandi Hönd málstaðarins sem Shoghi Effendi, vörður bahá'í trúarinnar, útnefndi á sínum tíma. Andlát hans markar því nokkur tímamót í sögu bahá'í trúarinnar þar sem engar fleiri Hendur verða útnefndar. Þess í stað færist verksvið þeirra að mestu leiti yfir til Alþjóðlegu ráðgjafamiðstöðvarinnar.
Dr. Varqá var ákaflegur blíður og vingjarnlegur í viðmóti. Hann fæddist árið 1912 og þjónaði trúnni dyggilega fjölmörg ár.
Barney Leith gerir honum betri skil í bloggi sínu hér.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 19. september 2007
Óvissuferð
Þann 31. ágúst sl. fór veflausnahópurinn í óvissuferð sem skipulögð var af lasertag.is. Þetta var alveg frábær ferð. Við vorum sótt í vinnuna í lítilli rútu og keyrt um hinar og þessar götur í Reykjavík meðan okkur var skipt í þrjá fjögurra manna hópa og okkur var kynnt röð þrauta til að inna af hendi. Þessar þrautir voru m.a. að:
1 . Finna grænan bíl og taka mynd af öllum hópnum fyrir framan hann.
2. Taka mynd með þemanu gamalt og nýtt.
3. Finna íslenska fánann og taka mynd af honum.
4. Finna fræga persónu og taka mynd af henni heilsa einum hópmeðlimi sem klæðast ætti gulum uppþvottahanska á hægri hendi (þeirri sem heilsað væri með).
5. Taka mynd með þemanu sexy.
Afraksturinn af þessum þrautum má svo sjá í þessu albúmi.
Eftir þetta var svo farið í Lasertag, þrjá leiki og pizza og gos inn á milli. Þetta var frábært og þvílík áreynsla. Ég fékk líka þessa svaðalegu strengi svo ég gat varla gengið niður stiga í 3 daga á eftir.
Síðan var grill hjá Danna. Brill kvöld!.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. september 2007
Islam og trúarbrögð
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)