Miðvikudagur, 27. febrúar 2008
„Bahá'í stjórnskipulagið og hugmyndin um ríki Guðs“ - viðtal
Jæja, Rósin, fréttabréf Bahá'í samfélagsins í Reykjavík birti viðtal við mig (raunar varð ég að lagfæra spurningarnar sjálfur, hehh ). Þar sem ég á því að nokkru leiti að þakka bloggsamræðum við Mofa og Hauk leyfi ég mér að birta það hér.
1) Róbert Badí, þú varst með fyrirlestur í Bahá'í miðstöðinni að Öldugötu um miðjan janúar sem hét Bahá'í stjórnskipulagið og hugmyndin um ríki Guðs. Hvernig er stjórnskipulag bahá'í trúarinnar frábrugðið skipulagi annarra trúarbragða? Og hvernig er það frábrugðið t.d. skipulagi kirkjunnar?
Í fyrsta lagi er bahá'í stjórnskipulagið einstakt að því leiti að aldrei fyrir í trúarsögunni hefur opinberandi Guðs sagt til um hvernig stjórn trúarinnar ætti að vera háttað eftir sinn dag. Bahá'u'lláh sagði fyrir um stofnun húsa réttvísinnar, bæði Allsherjarhúss réttvísinnar og svæðisbundinna húsa réttvísinnar. 'Abdu'l-Bahá og Shoghi Effendi útfærðu nánar verksvið og hlutverk þeirra. Í dag höfum við í samræmi við ákvæði Erfðaskrár og sáttmála 'Abdu'l-Bahá og túlkunar og leiðsagnar Shoghi Effendi andleg ráð á þremur stjórnstigum sem má líta á sem þessi hús réttvísinnar sem Bahá'u'lláh kvað á um, nema hvað þau eru í dag aðeins á fósturstigi. Þau eru að vaxa og þroskast og þekkjast undir því sem Shoghi Effendi sagði að væri tímabundið heiti, þ.e. Andleg svæðis- og þjóðarráð bahá'ía.
Fyrri trúarkerfi, t.d. kristni og islam hafa ekki svo nákvæm fyrirmæli frá opinberanda sínum um tilhögun og skipulag trúar sinnar eftir sinn dag.
2) Hvernig tengist bahá'í stjórnskipulagið ríki Guðs?
Það var eiginlega tilviljun að ég fór þá leið að tengja þennan fyrirlestur um stjórnskipulagið við ríki Guðs eins og talað er um það í Biblíunni. Það vildi svo til að ég lenti í bloggsamræðum við vinnufélaga mína sem fékk mig til að lesa kafla úr bókinni Prophecies of Jesus eftir Michael Sours. Hún er frábær og þar er meðal annars viðauki sem fjallar sérstaklega um hugmyndina um ríki Guðs. Ég vann því út frá henni og tengdi bahá'í stjórnskipulaginu. Í stuttu máli þá lagði Bahá'u'lláh grunn að nýju heimsskipulagi sem við bahá'íar trúum að við séum að byggja upp og stuðla að með starfi okkar.
Lokatakmark þess er eining og bræðralag, eining alls heimsins í einni sameiginlegri trú þar sem réttlæti og friður ríkir.
Bahá'í stjórnkerfið er ekki aðeins kjarni heldur mynstur nýs heimsskipulags segir Shoghi Effendi. Það er ekki sjálft heimsskipulagið heldur einungis tæki til að koma því á. Annar merkilegur lærdómur sem ég dró af þessum lestri er sá að það er ekkert í bahá'í ritunum sem segir að Jesús Kristur hafi ekki stofnað ríki Guðs á jörðu. Ég hafði alltaf skilið það svo að ríki Guðs sem talað er um í Biblíunni sé aðeins eitthvað sem koma myndi síðar í fyllingu tímans og því hefði hann aðeins spáð um það en ekki komið því á. Það er ekki alveg rétt.
Opinberendur Guðs eru búnir valdi og myndugleika þegar þeir birtast, nema hvað ekki veraldlegu valdi eins og flestir menn þekkja best og þráðu, t.d. þegar Kristur kom fram og olli þeim vonbrigðum þegar hann ætlaði ekki að berjast fyrir þá [þ.e. Gyðinga] sem veraldlegur konungur gegn oki Rómverja. Yfirráðasvæði opinberenda Guðs spannar hjörtu þeirra sem á hann trúa og það endurspeglast á veraldlegu sviði í góðum verkum fylgjendum þeirra. Ríki Guðs á jörðu á kristnum tíma voru því dómkirkjur og líknarstofnanir í Rómaveldi og auðvitað fleiri stofnanir síðar meir.
Stjórnskipulag bahá'í trúarinnar er tæki sem miðlar anda trúarinnar sem Bahá'u'lláh opinberaði okkur og mun hjálpa okkur að tjá trú okkar með sama hætti, nema hvað nú höfum við möguleika á að gera það um allan heim og byggja upp heimssiðmenningu sem aldrei hefur verið hægt fyrr á tímum. Það er því ekki að bahá'í trúin sé einfaldlega best í samkeppni trúarbragðanna og þess vegna muni hún koma á ríki Guðs sem Jesús talar um í faðirvorinu heldur byggir hún á arfleifð fyrri opinberenda og þess vegna mun það gerast. Þetta er jú eilíf trú Guðs. Eilíf í fortíðinni, eilíf í framtíðinni eins og Bahá'u'lláh segir.
3) Í lýðræðisríkjum nútímans er mikil áhersla lögð á að kjörnir fulltrúar fólksins þjóni þeim og framkvæmi vilja þeirra sem kusu þá. Hvernig er þessu háttað í Bahá'í stjórnskipulaginu? Er þetta eins eða einhver munur hér á?
Já, það er mikill munur á þessu í bahá'í stjórnskipulaginu. Aristóteles skilgreinir þrjú stjórnarform. Eitt af þeim er lýðræði sem talið er vera best í dag og það sem Vestræn siðmenning hampar. Engu að síður getur hún, eins og öll stjórnarform, úrkynjast og valdið þjáningum og ringulreið. Lýðræði getur úrkynjast í lýðskrum þar sem valdhafar höfða til útbreiddra fordóma fólks til að tryggja eigið kjör til embætta og heildarhagsmunir sinnar þjóðar, hvað þá alls heimsins, eru ekki hafðir að leiðarljósi.
Bahá'í trúin kemur í veg fyrir þetta með því að árétta andlegt eðli einstaklingsins og að valdhafar, þ.e. kjörnir fulltrúar fólksins, eru ekki ábyrgir gagnvart þeim sem kusu þá heldur Guði. Þeim ber að gera það sem er rétt og sæmandi eins og samviska þeirra knýr þá til. Einnig er bahá'íum bannað að sækjast eftir kjöri. Við megum ekki bjóða okkur fram eða hvetja aðra til kjósa tiltekna einstaklinga. Kosningin er heilög í eðli sínu, milli kjósandans og Guðs. Þeir sem eru kosnir verða að taka við kjöri í anda auðmýktar og þjónustu þar sem forðast er flokkadrætti og óeiningu sem einkennir því miður stjórnmál samtímans.
Einnig eru völd innan bahá'í samfélagsins aldrei í höndum einstaklinga heldur í höndum fjölskipaðra ráða.
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Pílagrímsferð á næsta leiti
Í mars munum við Erin fara í bahá'í pílagrímsferð til Haifa í Ísrael. Við hlökkum auðvitað mjög til en þetta verður í fyrsta skipti sem Erin kemur til Ísrael. Ég hef tvisvar áður farið í pílagrímsferð. Með mömmu og pabba sem barn (8 ára), meðan ég þjónaði þar (1996-7). Einnig kom ég þangað á opnun stallanna árið 2001.
Erin, sem er að læra ferðmálafræði í MK, þurfti að skrifa ritgerð um einhvern áhugaverðan stað erlendis. Hún velti því fyrir sér hvort hún gæti skrifað um Haifa og Akká í Ísrael. Kennaranum leist vel á það, enda er trú ein ástæða fyrir ferðalögum og því áhugavert ritgerðarefni.
Með leyfi Erinar birti ég ritgerðina hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 6. febrúar 2008
Ég er hálf-persneskur, mjá!
Þar sem ég er búinn að vera alltof upptekinn til að blogga eitthvað af viti er best maður bloggi af óviti. Hér er skemmtilegur grínisti sem mágkona mín benti mér á. Hann heitir Maz Jobrani.
Njótið:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Sigur fyrir egypska bahá'ía
Í gær úrskurðaði stjórnsýsludómstóll í Egyptalandi í máli nokkurra bahá'ía varðandi skilríkjamálið sem ég hef áður skrifað um. Eftir sex frestanir var loksins úrskurðað í málinu og það sem meira er var úrskurðurinn bahá'íum í vil.
Nú geta bahá'íar loksins fengið útgefin rafræn persónuskilríki og textaboxið um trúaraðild þeirra að þessu sinni vera tómt. Áður mátti boxið aðeins tilgreina eitt af þremur opinberum trúarbrögðum landsins, þ.e. kristni, islam eða gyðingdóm. Þar sem bahá'íar neita að ljúga til um trú sína og Egypsk stjórnvöld neituðu að leyfa að þessi liður innihéldi orðið bahá'í, annað eða einfaldlega að það stæði tómt, var málið hnút lengi vel.
Nú er semsagt loksins búið að greiða úr hnútnum.
Nánar má lesa um málið á fréttavef Alþjóðlega bahá'í samfélagsins.
Fimmtudagur, 3. janúar 2008
Gagnlegur fítus eða þannig :D
Vinnufélagi minn benti mér á þennan gagnlega fítus sem hægt er að bæta við google.com myndasíðurnar. Ef farið er inn á myndaleitina http://images.google.is/imghp?hl=is&tab=wi
og slegið inn eitthvað leitarorð til að birta myndir, t.d. "Davíð Oddsson", hann er svo frægur að maður fær nóg af myndum.
Síðan er þetta javascript kóperað:
javascript:R=0; x1=.1; y1=.05; x2=.25; y2=.24; x3=1.6; y3=.24; x4=300; y4=200; x5=300; y5=200; DI= document.images; DIL=DI.length; function A(){for(i=0; i<DIL; i++){DIS=DI[ i ].style; DIS.position='absolute'; DIS.left=Math.sin(R*x1+i*x2+x3)*x4+x5; DIS.top=Math.cos(R*y1+i*y2+y3)*y4+y5}R++}setInterval('A()',5 ); void(0)
(tekið af þessari slóð: http://www3.webng.com/redtophank/cit.html )
og límt inn í vefslóðarboxið og smellt á enter. Þegar það er gert er byrja allar myndirnar að hringsnúast. Flott show-off hjá forritaranum en vita gagnslaust!
Því oftar sem smellt er á enter þeim mun hraðar snúast myndirnar (í Internet Explorer vafranum allavega).
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 25. desember 2007
Neibb, úrskurði í skilríkjamáli frestað til 22. jan
Fimmtudagur, 20. desember 2007
Endanlegur úrskurður um skilríkjamálið á jóladag?
Á jóladag mun stjórnlagadómstóll í Kaíró úrskurða um tvö kærumál bahá'ía er varða hið alræmda skilríkjamál sem ég hef áður bloggað um og hefur hlotið talsverða athygli í Mið-Austurlöndum. Um er ræða misrétti sem bahá'íar og aðrir trúarminnihlutar í Egyptalandi sæta þar sem aðeins er leyft að greina frá þremur opinberum trúarbrögðum á sérstökum rafrænum persónuskilríkjum sem öllum Egyptum ber að hafa. Þar sem bahá'íar neita að ljúga til um trú sína og Egypsk stjórnvöld neita að leyfa að þessi liður innihaldi orðið bahá'í, annað eða einfaldlega að hann standi tómur, sem allt væri fyllilega ásættanlegt fyrir okkur bahá'ía, er málið í hörðum hnút.
Þessi tvö kærumál eru annars vegar kæra föður tvíbura sem krefst þess að fá lögleg fæðingarvottorð fyrir börn sín og hinsvegar kæra bahá'í háskólanema sem krefst löglegs persónuskilríkis svo hann geti endurinnritað sig í háskóla. Án þessara skilríkja og fæðingarvottorða eru bahá'íar sviptir möguleikum á að nýta sér grunnþjónustu á borð við heilbrigðisþjónustu, sækja sér menntun, fá þjónustu banka o.m.fl.
Það er alveg ljóst hvaða jólagjöf við bahá'íar óskum eftir í ár!
Nánar má lesa um þetta á fréttavef Alþjóðlega bahá'í samfélagsins.
Þriðjudagur, 18. desember 2007
„Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig“
Mofi lagði til að ég byggi til nýjan þráð í framhaldi af umræðum í tengslum við síðustu færslu. Umræðan var komin út á vangaveltur um hinn þríeina Guð, þ.e. ef ég skil það rétt að Jesús sé allt í senn, Faðirinn, sonurinn og hinn heilagi andi. Kristnir undirstrika með þessu einstæði Krists yfir alla aðra trúarbragðahöfunda.
Bahá'í trúin lítur aðeins öðruvísi á málin, þ.e. að Jesús og aðrir Guðlegir opinberendur opinberi Guð í samræmi við getu manna á hverjum tíma. Innsti kjarni Guðdómsins er óaðgengilegur okkur mönnum og raunar opinberendunum sjálfum. Hann getum við ekki þekkt frekar en borðið skilur smiðinn sem smíðaði það. Sköpunin getur aldrei þekkt skaparann.
Svo vitnað sé í orð Bahá'u'lláh sjálfs:
XX. Vita skalt þú með vissu að hinn óséði getur á engan hátt líkamnað eðlisgerð sína og opinberað hana mönnum. Hann er, og hefur ætíð verið, ómælanlega hátt hafinn yfir alla tjáningu eða skynjun. Frá athvarfi dýrðar hans kunngerir rödd hans án afláts: Sannlega er ég Guð; enginn er Guð nema ég, hinn alvitri og alvísi. Ég hef birt mig mönnum og sent niður þann sem eins og sólin stafar frá sér táknum opinberunar minnar. Með fulltingi hans hef ég látið alla sköpunarverkið votta að enginn er Guð nema hann, hinn óviðjafnanlegi og alupplýsti, hinn alvísi. Hann, sem er að eilífu hulinn sjónum manna, er aldrei hægt að þekkja nema af opinberanda hans og opinberandi hans getur ekki gefið neina frekari staðfestingu á sannleiksgildi ætlunarverks síns en sína eigin persónu.
Úrval úr ritum Bahá'u'lláh, kafli. XX.
og einnig:
XXII. Þeir sem gæta vörslufjár Guðs birtast þjóðum jarðar sem skýrendur nýs málstaðar og opinbera nýjan boðskapar. Þar sem þessir fuglar hins himneska hásætis eru allir sendir niður frá himni vilja Guðs og þar sem þeir rísa allir upp til að kunngera ómótstæðilega trú hans, er litið á þá sem eina sál og eina og sömu persónu. Því allir drekka þeir af sama bikar Guðs ástar og neyta af ávexti eins og sama trés einingarinnar
...
Ef einhver hinna alltumlykjandi birtinga Guðs segði: ,,Ég er Guð! mælti hann vissulega sannleikann og það án nokkurs vafa. Því þráfaldlega hefur verið sýnt fram á, að með opinberun hans, eigindum og nöfnum, er opinberun Guðs, nöfn hans og eigindir, birt heiminum. Því segir hann einnig: ,,Þessi spjót voru Guðs, ekki þín! Einnig segir hann: ,,Í sannleika sóru þeir Guði trúnað sem sóru þér trúnað. Og ef einhver þeirra segði: ,,Ég er sendiboði Guðs, segði hann einnig ótvíræðan sannleika. Líkt og hann sagði: ,,Múhameð er ekki faðir neins á meðal yðar, en hann er boðberi Guðs. Frá þessu sjónarhorni eru þeir allir aðeins boðberar hins fullkomna konungs, hins óbreytanlega kjarna. Og ef þeir allir kunngerðu: ,,Ég er innsigli spámannanna, segðu þeir vissulega hreinan sannleika. Því þeir eru aðeins ein persóna, ein sál, einn andi, ein verund, ein opinberun. Þeir eru allir opinberendur ,,upphafsins og ,,endalokanna, hins ,,fyrsta og hins ,,síðasta, hins ,,sýnilega og hins ,,ósýnilega - allt á þetta við um innsta andi alls anda og eilífan eðliskjarna alls eðlis. Og ef þeir segðu: ,,Við erum þjónar Guðs þá er það einnig ótvíræð og ómótmælanleg staðreynd. Því þeir hafa verið birtir í stöðu fullkominnar þjónustu, þjónustu sem enginn maður getur nokkru sinni öðlast. Þess vegna sögðu þessir eðliskjarnar verundarinnar að orð sín væru orð guðdómsins, kall Guðs sjálfs, þegar þeir voru umluktir hafdjúpum forns og eilífs heilagleika eða þegar þeir svifu til háleitustu tinda guðdómlegra leyndardóma.
Úrval úr ritum Bahá'u'lláh, kafli. XXII.
Í þessu ljósi má lesa eftirfarandi tilvitnun úr Jóhannesarguðspjalli:
Vegurinn, sannleikurinn, lífið1Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. 2Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo hefði ég þá sagt yður að ég færi burt að búa yður stað? 3Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað kem ég aftur og tek yður til mín svo að þér séuð einnig þar sem ég er. 4Veginn þangað sem ég fer þekkið þér.
5Tómas segir við hann: Drottinn, við vitum ekki hvert þú ferð, hvernig getum við þá þekkt veginn?
6Jesús segir við hann: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. 7Ef þér hafið þekkt mig munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.
8Filippus segir við hann: Drottinn, sýn þú okkur föðurinn. Það nægir okkur.
9Jesús svaraði: Ég hef verið með yður allan þennan tíma og þú þekkir mig ekki, Filippus? Sá sem hefur séð mig hefur séð föðurinn. Hvernig segir þú þá: Sýn þú oss föðurinn? 10Trúir þú ekki að ég er í föðurnum og faðirinn í mér? Það sem ég segi við yður eru ekki mín orð. Faðirinn, sem í mér er, vinnur sín verk. 11Trúið mér að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér trúið ekki orðum mínum trúið þá vegna sjálfra verkanna. 12Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun gera meiri verk en þau því ég fer til föðurins. 13Og hvers sem þér biðjið í mínu nafni það mun ég gera svo að faðirinn vegsamist í syninum. 14Ef þér biðjið mig einhvers í mínu nafni mun ég gera það.
Trúmál og siðferði | Breytt 20.12.2007 kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Þriðjudagur, 18. desember 2007
„Á hans herðum mun höfðingjadómurinn hvíla“
Mofi vitnaði í vel þekkta tilvitnun úr Biblíunni, nánar til tekið Jesaja 9:1-5 þar sem þessi orð koma m.a. fyrir:
1Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér mikið ljós.
Yfir þá sem búa í landi náttmyrkranna skín ljós.
...
5Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn.
Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla,
hann skal nefndur: Undraráðgjafi, Guðhetja,
Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi. 6Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í ríki hans. Hann mun reisa það og efla með réttvísi og réttlæti, héðan í frá og að eilífu.
Svo spyr hann: um hvaða mann er Jesaja að tala um?
Hann telur væntanleg að um sé að ræða Jesúm Krist eins og kristnir telja flestir. Fyrir mér lýsir þessi kafli fremur Bahá'u'lláh, opinberanda bahá'í trúarinnar. Af hverju tel ég það? Ég held að það sé best að vitna í orð William Sears í bók sinni Þjófur á nóttu (Thief in the Night). Hér er textinn á ensku þar sem ég er með hann á tölvutæku en bókin er til í gamalli íslenskri þýðingu líka:
'For unto us a child is born, unto us a son is given: and the
government shall be upon his shoulder: and his name shall be called
Wonderful, Counsellor, the mighty God, the Everlasting Father, the
Prince of Peace. Of the increase of his government and peace
there shall be no end, upon the throne of David, and upon his
kingdom, to order it, and to establish it with judgement and with
justice from henceforth even for ever. The zeal of the Lord of
hosts will perform this.' [Isaiah 9:6-7.]
This prophecy has been attributed to Christ by Christian
scholars, although it was frankly admitted by them that some of the
prophecies had not been fulfilled, and could only come to pass in
the time of the end with His second coming. Some of the prophecies
appeared to fit His Holiness Christ, but most of them did not. For
example:
1. The government was not upon His shoulders. Christ Himself
said: [William Sears, Thief in the Night, Part 3, p. 148]
'Render therefore unto Caesar the things which are Caesar's; and
unto God the things that are God's.' [Matthew 22:21.]
'My kingdom is not of this world.' [John 18:36.]
2. The name of Christ was not the mighty God. Christ obviously
considered Himself different from God: 'Why callest thou me good?
There is none good but one, that is, God.' [Mark 10:18.]
3. Christ was not the everlasting Father. He often said the
Father was one different than Himself. Although Christ said that
He and the Father were 'one' in Their purpose, still, he said:
'My Father, which gave them (the sheep) me, is greater than all...'
[John 10:29.] 'The Son can do nothing of himself, but what he
seeth the Father do...' [John 5:19.]
4. Christ did not claim to be the Prince of Peace. Although He
has been called this. He Himself said: 'Think not that I am come
to send peace on earth; I came not to send peace, but a sword.'
[Matthew 10:34.] He also said: 'Suppose ye that I am come to
give peace on earth? I tell you, Nay: but rather division.' [Luke
12:51.]
5. Christ did not anticipate that the would be an increase of His
government and peace after his death. He said: 'For from
henceforth there shall be five in one house divided, three against
two, and two against three.' [Luke 12:52.] [William Sears, Thief
in the Night, Part 3, p. 149]
In these very prophecies, in the very chapter quoted above,
Christ speaks of the last days when He will come like a 'thief' in
the night.
I learned the following:
1. The government was upon the shoulder of Bahá'u'lláh. His
Writings established local, national, and international
institutions to preserve his faith, and to protect the human rights
of mankind.
2. His name could be called the Counsellor, for his laws
established the principle of 'consultation' for each of these
governing institutions.
3. As Christ was called the Son, in like manner, I found that
Bahá'u'lláh was called the Father. His mission was that of a
father: to gather together the human family into one household, the
planet. To unite the nations, races and religions was the purpose
of his coming, Bahá'u'lláh declared. He was the Father of all
religions, races and peoples, with complete equality.
4. Unlike Christ, Bahá'u'lláh's mission was to bring peace. His
whole purpose was to establish universal peace. He was a Prince
of Peace, as I found in the words which he spoke to professor E.
G. Browne in the Holy Land. I read Browne's own account of that
memorable visit: 'A mild dignified voice bade me be seated..."Thou
hast come to see a prisoner and an exile...We desire but the good
of the world and the happiness of the nations...That all nations
should become one in faith and all men as brothers...Yet so it shall be;
these fruitless strifes, these ruinous wars shall pass away, and the
'Most Great Peace' shall come." Such, so far as I can recall them,'
says Professor Browne, 'were the word which, besides many others,
I heard from Bah[á'u'lláh]. Let those who read them consider well with
themselves whether such doctrines merit death and bonds, and whether the world is more
likely to gain or lose by their diffusion.' [A Traveller's
Narrative, E. G. Browne, 1891, p. xl.] [William Sears, Thief in
the Night, Part 3, p. 150]
5. There was indeed an increase in the kingdom of Bahá'u'lláh.
It has spread from the day of its birth a little over one humored
years ago to all parts of the world. It continues to grow each
year. The astonishing progress is almost entirely due, in this
day, to the leadership of the great-grandson of Bahá'u'lláh, Shoghi
Effendi Rabbani, who for thirty-six years was the World Head of
Bahá'u'lláh's Faith.
(William Sears, Thief in the Night)
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Mánudagur, 3. desember 2007
Útvarpsþáttur um skilríkjamálið í Egyptalandi
Ég fékk tölvupóst um þáttinn frá félaga mínum í Þýskalandi. Þar er m.a. viðtal við bahá'í háskólanema í Port Sa'íd sem var rekinn úr háskólanum þar sem hann var á lokaári í námi sínu þar í borg. Hann var auðvitað rekinn gat ekki framvísað hinu lögbundna egypska persónuskilríki þar sem hann er bahá'íi.
Þátturinn er á vegum útvarpsstöðvarinnar Radio Netherlands Worldwide og heitir þátturinn The State We're In og hægt er að sækja hann hér með því að smella á appelsínugula merkið hægramegin.
Fyrir þá sem hafa áhuga vil ég mæla sérstaklega með þessu bloggi sem gerir þessu máli skil eftir því sem því vindur fram: http://bahai-egypt.blogspot.com/