Dæmi um starf bahá'ía í Íran

Þessi viðbrögð Íranskra stjórnvalda koma ekki á óvart frekar en venjulega. Staðreyndin er hinsvegar sú að bahá'íar hafa þvert á móti gert sitt ítrasta til að byggja upp Íranskt samfélag og lagt mikið af mörkum í t.d. menntamálum.

Þetta óttast Íransstjórn hinsvegar og fer ávallt þá leið að saka bahá'ía um að vinna fyrir Ísraelsmenn og vinna gegn stjórnvöldum. Hvort tveggja er rangt. Bahá'íar mega ekki hafa nein afskipti af stjórnmálum eða taka þátt í flokkspólitísku starfi. Þeim ber að sýna stjórnvöldum lands síns skilyrðislausa hollustu, jafnvel klerkastjórninni í Íran sem ofsækir þá.

Einu tengsl bahá'í samfélagsins við Ísraelsríki helgast af veru heimsmiðstöðvar trúarinnar þar í landi þökk sé ákvörðunum persakeisara og tyrkjasoldáns á 19. öld.

Hér eru svo tengill á umfjöllun um starf bahá'ía í Íran með unglingum. Sams konar starf fer fram hér á Íslandi, t.d. í Kópavogi og Reykjanesbæ.

http://news.bahai.org/story/602 

Svo er hér nánari útlistun á starfi bahá'ía í Íran að menntamálum og sagan rakin frá 19. öld. Bahá'íar stofnuðu t.d. einn fyrsta stúlknaskóla landsins, Tarbíyyat stúlknaskólann árið 1911.

http://denial.bahai.org/003.php 

 


mbl.is Íranar staðfesta að bahá'íar hafi verið handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handtökur á bahá'íum í Íran - tenglar og myndskeið

Hér er að finna áhrifaríkt myndskeið af youtube sem ég fann og tengla sem mér voru sendir á erlendar fréttasíður þar sem fjallað er um handtökurnar í Íran.

 




http://news.yahoo.com/s/afp/20080517/wl_canada_afp/canadairanbahairightsreligion

http://geoconger.wordpress.com/2008/05/16/baha%E2%80%99i-leaders-arrested-in-iran-cen-51608/

http://www.canada.com/edmontonjournal/news/story.html?id=35696f32-eef6-47d2-8a7a-6b637d15679b

http://www.cnn.com/2008/WORLD/meast/05/16/iran.bahais/index.html

http://www.hrw.org/english/docs/2006/06/05/iran13515.htm

http://www.religiousintelligence.co.uk/news/?NewsID=2000

http://latimesblogs.latimes.com/babylonbeyond/2008/05/iran-bahais-rou.html


Mynd af hinum handteknu

Í framhaldi af birtingu fréttar um málið á mbl.is og eyjan.is bendi ég á bloggfærslu mína hér á undan um málið og mynd sem þar er að finna af hinum handteknu.
mbl.is Sex bahá'í leiðtogar handteknir í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Vinirnir“ handteknir

„Vinirnir“ í Íran

Allir meðlimir sjö manna óformlegs stjórnunarhóps bahá'í samfélagsins í Íran, sem gengur undir nafnin „Vinirnir“, voru handteknir í Íran í gær.

Handtökuaðgerðin var skipulögð að því er virðist af leyniþjónustu landsins og minnir um margt á aðgerðir stjórnvalda stuttu á eftir islömsku byltinguna árið 1979 þegar meðlimir Andlegs þjóðarráðs bahá'ía Íran voru handteknir og teknir af lífi. Í kjölfar banns stjórnvalda stuttu síðar á allri formlegri stjórnfarslegri starfsemi bahá'í samfélagsins voru fjölskipuð og lýðræðislega kjörin ráð þess, nefnd Andleg svæðis- og þjóðarráð, leyst upp.

Nánar má lesa um handtökuna á vef Alþjóðlega bahá'í samfélagsins hér.

Einnig má lesa fyrri greinar mínar um ofsóknir Íransstjórnar hér og hér og hér


Afganistan

Sam og sonurÉg var að vafra að venju á facebook þegar Sam Karvonen, bahá'íi frá Finnlandi, sem ég þekki í gegnum Erin knúði rafrænt að dyrum í gegnum spjallrásina á facebook. Hann býr og starfar í Afganistan fyrir Finnska utanríkisráðuneytið.

„Sæll Badí. Long time no squeak! Kveðja til svala og raka Íslands frá heita og þurra Afganistan“

- „Sæll Sam, hvernig hefur þú það?“

„Frábærlega, fjölskyldan hefur það fínt ... við myndum ekki vilja flytja héðan, eins furðulega og það hljómar“

„Já það hljómar furðulega“ sagði ég.

Eftir að hafa spurt aðeins um hvernig við hefðum það útskýrði hann nánar:

„Afganistan er eitt misskildasta og rangfærðasta land heims (af fjölmiðlum).“

- „Hljómar mjög óstöðugt í fjölmiðlum hér“ sagði ég.

„Fjölmiðlar hafa ekki áhuga á sannleikanum í heild sinni“.

Ég spurði því næst hvaða tungumál þeir töluðu þar sem hann væri. Persnesku sagði hann sem væri mjög fínt, og gæti hann nú bætt sína lélegu persneskukunnáttu (hann er hálfur Írani eins og ég). Síðan varð hann að fara þar sem hádegishléinu hans var lokið.

Ótrúlegt í dag að geta fengið fréttir frá Afganistan frá fyrstu hendi með þessum hætti á netinu. Svo hlýtur maður að velta fyrir sér hvað fjölmiðlum gangi til ef þeir draga upp svona ranga mynd af Afganistan.

 

Hér eru svo myndir sem Sam hefur tekið og ég fékk að birta með leyfi hans: 

Kabúl

Öldungar


Niðurstöður liggja fyrir

Meðlimir Allsherjarhúss réttvísinnar

Geggjað! Meðlimir Allsherjarhúss réttvísinnar næstu fimm árin eru:

Farzam Arbab, Kiser Barnes, Peter Khan, Hooper Dunbar, Firaydoun Javaheri, Paul Lample, Payman Mohajer, Shahriar Razavi, Gustavo Correa.

Þar af eru tveir nýjir:

Shahriar Razavi - hann er íslenskum bahá'íum að góðu kunnur enda þjónaði hann sem álfuráðgjafi og heimsótti okkur reglulega þar til hann var útnefndur til setu í Alþjóðlegu kennslumiðstöðinni. Yndislegur maður sem við Erin vorum svo lánsöm að fá að hitta í pílagrímsferðinni okkar.

Gustavo Correa er að mér skilst einn af stofnendum Ruhi stofnunarinnar í Kólumbíu og FUNDAEC, sem er þróunarstofnun í sama landi.

Spennó! W00t


Nú bíður maður spenntur

Fulltrúi greiðir atkvæðiUm þessar mundir stendur yfir Heimsþing bahá'ía í Haifa. Meðlimir Andlegra þjóðarráða bahá'ía eru þar saman komnir til að kjósa æðstu stjórnstofnun bahá'í heimsins, Allsherjarhús réttvísinnar.

Fimm félagar mínir sem sitja í íslenska þjóðarráðinu eru þar nú og er maður með þeim í huga og hjarta. Ég kemst því miður ekki að þessu sinni, enda nýbúinn að vera þar í pílagrímsferð.

Á fréttavef Alþjóðega bahá'í samfélagsins má sjá skilmerkilegar fréttir og lýsingar á samkomunni og góðar myndir frá kosningu Allsherjarhússins og helgistund í tilefni af níunda degi ridvánhátíðarinnar sem haldin var hátíðleg í gær. 

Svo bíður maður spenntur að vita hverjir voru kosnir meðlimir Allsherjarhússins að þessu sinni, en það verða a.m.k. tvær breytingar þar sem tveir af þeim hafa beðist lausnar sökum aldurs. 

  


Að vera sendur til Coventry

Að vera sendur til Coventry („to be sent to Coventry“) er orðatiltæki á Bretlandi sem þýðir að vera útskúfaður og lítils virtur. Ekki er alveg ljóst af hverju þetta orðatiltæki stafar, skv. yfirborðslegu gúgli mínu þar um.

En hvað um það. Þetta orðatiltæki átti sem betur fer alls ekki við í mínu tilviki nú um síðustu helgi, en ég var jú sendur til Coventry, í orðsins fyllstu merkingu.

Ég var beðinn um að sækja ráðstefnu á vegum Bahá’í samfélagsins á Englandi fyrir svokallaðar umdæmisnefndir, en ég var nýlega útnefndur á eina slíka hér á landi.

Síðastaliðin 12 ár hafa bahá’í samfélög um allan heim verið að byggja upp samfélagsstarf með kerfisbundnum hætti þar sem ákveðin grunnstarfsemi er í aðalhlutverki. Þessi starfsemi miðar að því að efla andlegt líf bahá’í samfélagsins og þjóðfélaganna sem við búum í með því að bjóða upp á helgistundir, námshringi, barnafræðslu og unglingafræðslu.

Þessi starfsemi er starfrækt, metin og þróuð innan landfræðilegra eininga sem hvert Andlegt þjóðarráð bahá’ía í hverju landi fyrir sig skiptir landi sínu í útfrá ákveðnum forsendum og þegar þessi umdæmi komast á ákveðið þróunarstig eru útnefndar slíkar umdæmisnefndir.

Þessi ráðstefna var sérstaklega fyrir umdæmisnefndir bahá’í samfélagsins á Englandi en einnig var umdæmisnefndum frá völdum löndum í Evrópu boðið að koma, þar á meðal umdæmisnefnd hins íslenska suðvesturumdæmis sem spannar Snæfellsnes í vestri til Skeiðarársands í austri.

Miklar framfarir hafa átt sér stað í umdæmum Englands þar sem grasrótin hefur sýnt mikinn þrótt og henni tekist að halda uppi sívaxandi starfsemi. Það var því ákaflega lærdómsríkt að fá að hlýða á umdæmisnefndir þar segja frá sinni reynslu og taka þátt í umræðum á ráðstefnunni.

Ráðstefnan var mjög vel skipulögð og var haldin á Brittannia Hotel Coventry. Hótelið var allt í lagi, en skoraði ekki hátt í minni bók hvað hreinlæti og upphitun varðar. Þegar maður kemur á slíkt hótel skilur maður fljótt hversu góðu við Íslendingar erum vanir hvað húsakost, upphitun og hótelstandard varðar.

Það var hinsvegar vel haldið á málum hvað mat varðaði sem kom mér á óvart, því einhverra hluta vegna stóð ég í þeirri trú að það væri ekki breskur siður að sýna matargestum mikið örlæti sem er sérstaklega dásamlegt þjóðareinkenni Persa og Íslendinga. Svo var sem betur fer ekki raunin, og ég fékk nóg að borða! W00t LoL

Þátttakendur ráðstefnunnar voru um 100 talsins. Flestir eins og vænta mátti frá Englandi, en einnig voru þátttakendur frá Skotlandi, Wales, Noregi, Svíþjóð, Írlandi, Hollandi, Belgíu, Finnlandi og svo frá Íslandi auðvitað.

Það var frábært að hitta allt þetta fólk og merkilegt hvað það er yndislegt og einfalt að kynnast bahá’íum og auðvitað endurnýja gömul kynni og hitta fólk sem þekkir fólk sem maður þekkir.

Ég ætla að nota tækifærið og koma nokkrum kveðjum á framfæri hér:

Mirela – Suela Qerreti Vahdat biður að heilsa þér.
Erin – Patrick og Laura Jansson, Jessica (pílagrími), Soroush Fadaei og Minoo Shamsuddini biðja að heilsa þér.
Ólafur og Ragnheiður – Fereshte Ferdowsian biður að heilsa ykkur.
Helena Hastie og Tanya Jones sem komu hingað á síðasta sumarskóla biðja að heilsa öllum sem þær þekkja.

Svo fylgja nokkrar myndir í myndaalbúminu.

Og svo má lesa um Coventryborg hér og fræðast um dómkirkjuna þar hér.


Þegar ofsóknir og mannréttindabrot aukast?

Þessi frétt kemur mér mjög á óvart í ljósi þess að ofsóknir á hendur bahá'íum og öðrum minnihlutahópum í Íran eru sífellt að aukast, bahá'í ungmennum meinað um háskólavist, grafreitir vanvirtir o.m.m.fl. Allt í samræmi við hið illræmda golpaygani-minnisblað, þar sem kveðið er á um hvernig stöðva skuli allan framgang og framfarir bahá'í samfélagsins þar í landi, með „low-profile“ aðferðum sem veki ekki eins mikla athygli og aftökurnar sem áttu sér stað stuttu eftir byltinguna 1979.

Nú virðist þolinmæði Íransstjórnar á þrotum því í mars 2006 fréttist til að mynda af því að stjórn Íranshers hefði skipað byltingarvörðum, lögreglunni og upplýsingaráðuneytinu að bera kennsl á, skrá og safna upplýsingum um alla þá sem aðhylltust bahá'í trúna þar í landi. Slíkar aðfarar hafa áður verið forleikurinn að grófum ofsóknum og mannréttindabrotum í garð bahá'í samfélagsins.

Til að bæta gráu ofan á svart liggur um þessar mundir fyrir Íransþingi hegningarlagafrumvarp þar sem dauðrefsing liggur við því að snúa frá islam til annarrar trúar (apostasy). Þessari stefnu hefur verið fylgt áður en þetta er í fyrsta sinn sem kveðið er á um það í lögum landsins. Leiða má að því líkur að löggjöfin beinist sérstaklega að bahá'í trúarminnihlutanum en löggjöfin mun að sjálfsögðu hafa áhrif á alla aðra trúarminnihluta landsins, þar með talið hina „opinberu“ trúarminnihluta sem kveðið er á um stjórnarskrá landsins (þ.e. gyðingum, kristnum og saraþústratrúarmönnum, en bahá'í minnihlutinn er samt stærri en þessir hópar en ekki viðurkenndur). Ennfremur er stjórnvöldum leyft í þessu frumvarpi að grípa til aðgerða sem ganga gegn „öryggishagsmunum ríkisins“ innan Írans og á erlendri grund. Íransstjórn hefur oftsinnis  ranglega sakað bahá'í samfélagið um að vega að öryggi ríkisins og reynt að réttlæta þannig gjörðir sínar. Þetta mun í raun gefa Íransstjórn leyfi til mannréttindabrota og ofsókna gegn öllum þeim sem henni er uppsigað við, innan sem utan landssteinanna.

Nánar má lesa um frumvarpið hér.

Lesa má um nýlegar handtökur á bahá'íum sem stóðu að unglingakennslu í Shiraz í suður Íran hér og hér

Og um hvernig komið er í veg fyrir að bahá'í ungmenni fá að sækja sér menntun í háskólum landsins má lesa hér

 


mbl.is Íran fagnar auknum samskiptum við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að útskýra allt ...

Í gærkvöldi var helgistund hjá okkur, sem er svosem ekki í frásögur færandi, en Lara mágkona mín sem er hér á landi í þriggja mánaða þjónustu við Bahá'í samfélagið hefur átt veg og vanda að þeim.

Á helgistundina kom kona nokkur með 2 og hálfs árs barn, sem er aftur á móti nokkuð nýtt. Aldrei hafa önnur börn komið á þær nema sonur okkar. Helgistundirnar hafa yfirleitt hafist kl. 19:30 eða 20:00 og hef ég oftast leyft Darían litla að vera með áður en hann hefur farið að sofa og hefur honum tekist að vera nokkuð þægur meðan farið er með bænirnar og ritningarnar sem Lara hefur valið. Helgistundin varir í 10 - 20 mínútur giska ég á og það er nógu stuttur tími til að Darían verði ekki vitlaus á kyrrsetunni og dugar yfirleitt að láta hann blaða í bænabók á meðan og sussa hljóðlega í eyrað á honum þegar hann byrjar að spjalla.

Nú litla stúlkan stóð sig líka vel á bænastundinni. Það sem mér fannst merkilegast við mæðgunar var hve skýr og snjöll litla stúlkan var og uppeldisaðferðir móðurinnar ef dóttirin vildi fá sínu fram eða varð smávegis óþekk. Í stað þess einfaldlega að hasta á barnið útskýrði hún af hverju hún ætti ekki að haga sér með tilteknum hætti. T.d. eftir helgistundina byrjaði hún að toga fast í hálsmál móður sinnar sem sat á gólfinu fyrir framan stofuborðið og var að sýna okkur úrklippubók úr smábarnakennslu sem hún hefur verið með á heimili sínu. Stúlkan var orðin nokkuð þreytt og fannst að þetta væri hin besta skemmtun og var að reyna toga móður sína afturábak og niður á gólf með þessum hætti. En í stað þess að hasta á barnið og skamma hana fyrir uppátækið útskýrði hún að hugmyndin með skemmtun væri að allir skemmtu sér og henni væri svo sannarlega ekki skemmt með uppátækinu og það væri vont að láta toga svona í hálsmálið á peysunni. Sagði hún henni að hætta og gerði stúlkan það að lokum. 

Það voru fleiri svona dæmi um kvöldið sem ég man ekki nógu vel til að lýsa þeim, en það sem mér fannst markverðast er að móðirin fór að sjálfsögu fram á hlýðni dótturinnar en engu að síður lagði hún sig jafnframt fram um að útskýra af hverju þetta eða hitt mætti ekki. Stundum er það ekki svo augljóst. Til dæmis vildi stúlkan setja hringluna hans Daríans í vatnsglasið sitt  meðan við fengum okkur kvöldverð fyrir helgistundina. Móðirin útskýrði það svo að það væri auðvitað af því að hringlan er hljóðfæri og ekki væri því sniðugt að bleyta það því þá eyðileggst hljóðfærið. Við Erin litum á hvort annað. Ekki hefði okkur dottið þetta í hug. Ég hefði örugglega hastað á Darían hefði hann ætlað að gera þetta og sagt: „Darían! Ekki setja hringluna í vatnið þitt“ og ekki útskýrt neitt.

Mér fannst þetta alveg eftirbreytni vert. Mun í pæla í þessu og reyna sjálfur Cool

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband