Kistufell

KistufellFellið þarna í baksýn heitir Kistufell. Mér finnst það æðislegt! Það minnir mig á heimahagana fyrir norðan. Alltaf þegar ég kem að Bahá'í setrinu að Kistufelli og horfi út um bakgluggann í stofunni í átt að fjallinu verð ég veikur og finnst það vera kalla á mig  og segja mér að ganga upp á sig! Grin

Jæja, um síðustu helgi ég fór ég ásamt Davíð Ólafssyni, Kristínu S. Ólafsdóttur og Agli Ólafssyni í stutta fjallgöngu. Því miður varð ég að flýta mér niður eftir tæpa tvo tíma að þessu sinni. Ég hef klifið fjallið tvisvar áður og útsýnið af toppnum er æðislegt, sérstaklega í góðu veðri.

Í þetta sinn gafst ekki tími til að fara upp á toppinn en við prófuðum nýja leið, fundum gil sem við fórum eftir og reyndum að finna leið eftir því upp á toppinn, en það tókst því miður ekki. Held maður haldi sig við gömlu leiðina eftirleiðis. En gilið er fallegt!

Hér eru örfáar myndir sem ég tók í þessari stuttu göngu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

ég fékk í magann bara við að sjá myndina sem tekin var ofan af fellinu..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 11.6.2008 kl. 17:24

2 Smámynd: Róbert Badí Baldursson

Jamm, þar var orðið nokkuð bratt.

Róbert Badí Baldursson, 11.6.2008 kl. 18:32

3 identicon

Ég vissi ekki að þú værir að norðan... :)

Næst þegar þið farið fæ ég að koma með :D

kobbi 

. (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 12:34

4 Smámynd: Róbert Badí Baldursson

Jú, jú! Króknum. Læt þig vita næst þegar við förum upp á fellið.

Róbert Badí Baldursson, 20.6.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband